VanRaam Thuja
VanRaam Thuja
Couldn't load pickup availability
Thuja er þægilegt og vandað þríhjól frá VanRaam fyrir fullorðna.
Hjólið er með tvö hjól að framan sem veitir mikinn stöðuleika og framúrskarandi aksturseiginleika hjólið er með rafmótor sem gerir hjólaferðirnar ennþá skemmtilegri. Milli framhjólanna er hagnýtt geymslurými fullkomið fyrir innkaupapoka, hjálm eða nánast hvað sem er. Í boði er að fá hundakörfu fyrir geymslurýmið. Sjálfvirk lýsing kviknar um leið og þú virkjar rafmagnsaðstoðina. Tvö framhjól gera það líka auðvelt að meta breidd hjólsins í akstri. Drægni með staðlaðri rafhlöðu er frá 40-70km hámarkshraði hjólsins er 20km/klst.
Thuja er ætlað fyrir notendur sem eru með innanfótarmál frá 79cm til 98cm
Burðargeta hjólsins er 100kg og 30kg í geymslurými. Thuja er hægt að fá í ýmsum litum og býður uppá úrval aukahluta.
Allir þættir Thuja-hjólsins voru þróaðir og prófaðir með aðstoð ástríðufullra hjólreiðamanna og reyndra söluaðila. Þessi nákvæmni í hönnun var viðurkennd á Dynamo Retail Event 2025, þar sem hjólið var valið Nýstárlegasta vara ársins.
Staðalbúnaður
- Rafmótor og rafhlaða 14.5Ah
- Shimano 5 hraða gírar
- Mismunadrif
- Keðjuhlíf
- Stöðubremsa
- Diskabremsur
- Lykklalás fastur á ramma
- Ljós að framan og aftan
- Stillanlegt stýri
Eiginleikar
- Mikill stöðuleiki og góðir akstureiginleikar
- Stýringin er léttari en á hefðbundnu hjóli
- Öruggt og þægilegt
- Stillanlegt sæti
- Miðjumótor
- Drægni allt að 70km (Stöðluð rafhlaða)
- Hámarkshraði 20km/klst
- Burðargeta 100kg og 30kg í geymslurými
Valmöguleikar:
- Hækjuhöldur
- Enviolo gírakerfi
- Ýmsir litir í boði
- Speglar hægri eða vinstri
- Fjöðrun undir hnakk
- Stækkun á rafhlöðu 23.5Ah
EIGUM SÝNINGAREINTAK Í SALNUM OKKAR

