VanRaam Easy Rider Compact Small
VanRaam Easy Rider Compact Small
Couldn't load pickup availability
Easy Rider Compact Small er þægilegt og vandað þríhjól frá VanRaam sem hentar börnum og unglingum.
Hjólið er með einstaklega þægilegu sæti og einnig er hægt að fá hjólið með rafmótor sem eykur öryggi og þægindi. Lægri setstaða setur minna álag á bak, axlir, háls og úlnliði. Ramminn er einstakur og gerir einstaklingum auðveldara fyrir að komast á og af hjólinu. Easy Rider Compact Small er með lægri þyngdarpunkt, sem eykur stöðuleika og bætir öryggi notandans.
Easy Rider Compact Small er ætlað fyrir notendur sem eru með innanfótarmál frá 52cm til 72cm.
Burðargeta hjólsins er 80kg. Easy Rider Compact Small er hægt að fá í ýmsum útfærslum og býður uppá gott úrval aukahluta og sérlausna.
Staðalbúnaður
- Mismunadrif
- Veltivörn
- Keðjuhlíf
- Fjöðrun
- Stöðubremsa
- Handbremsur
- Lás
- Ljós að framan og aftan
- Stillanlegt stýri
- Fimm ára ábyrgð á ramma
Eiginleikar:
- Ergonómísk setstaða
- Góðir akstureiginleikar
- Lág setstaða veitir gott öryggi
- Stýringin er léttari en á hefðbundnu hjóli
- Fjöðrun undir sæti
- Öruggt og þægilegt
- Stillanlegt sæti
Valmöguleikar:
-
Rafmótor
- Pedalar með bandi eða festingum
- Stytting á sveifum og sér aðlagaðar sveifar
- Ein handar stýring og ýmsar aðrar stýrislausnir
- Ýmist belti og beltisvesti í boði
- Armhvílur
- Hækjuhöldur
- Litur að eigin vali
- Passív styristöng
- Smart guard dekk
- Stefnuljós
- Speglar hægri eða vinstri
- Ýmis sæti og bök í boði
- Mikið af aukahlutum og sérlausnum í boði, auðvelt að aðlaga hjólið að þörfum hvers og eins
Uppgefið verð er miðað við grunnútgáfu. Endanlegt verð ræðst af völdum aukahlutum og gengi við greiðslu.
Öll hjólin frá VanRaam eru sérsmíðuð fyrir notandann og er afgreiðslutími því í samræmi við það eða að jafnaði 8 til 10 vikur frá pöntun.
Til að bóka prufu og mátun á hjóli vinnsamlegast sendu póst á info@mobility.is
Ath! Auglýst verð vöru er byggt á gengi íslenskrar krónu gagnvart erlendum viðmiðunarmyntum. Réttur er áskilinn til verðbreytinga vegna gengisbreytinga.









