Skip to product information
1 of 7

Schuchmann Madita HD vinnustóll fyrir börn og ungmenni

Schuchmann Madita HD vinnustóll fyrir börn og ungmenni

Verð kr699,990 ISK
Verð kr0 ISK Útsöluverð kr699,990 ISK
Útsala Uppselt
m/vsk

Madita HD er fjölhæfur og stillanlegur vinnustóll fyrir börn og ungmenni. Stóllinn gerir börnum kleift að sitja í augnhæð við jafnaldra sína. Madita HD (Heavy duty) er sérstaklega þróaður til að mæta sérstökum þörfum barna með mikla hreyfiútrás sem eiga það til að vagga eða spyrna sér aftur. Stóllinn er með Tilt-in-space og hæðarstillanlegur með aðstoð gaspumpu. Fjögur læsanleg færsluhjól. Rammi er með mótþyngd sem bætir stöðuleika stólsins og er hægt að fá í ýmsum þyngdum. Bak og fótplata er hæðar og hallastillanleg einnig eru armhvílur hæðar, halla og breiddar stillanlegar. Stólarnir eru afar vandaðir og framleiddir í Þýskalandi. Í boði er gott úrval af aukahlutum og sérlausnum og er því auðvelt að aðlaga stólinn að þörfum barnsins. Stílhreinn stóll sem fæst í mörgum litum. 

Staðalbúnaður:

  • Stillanleg setdýpt frá 30-42 cm
  • 75mm læsanleg færsluhjól
  • Keyrsluhandföng
  • Sérstyrktur rammi
  • 8kg mótþyngd á ramma
  • Sérstyrkt bakhalla stilling
  • Hæðarstillanlegur með gaspumpu
  • Tilt-in-space (-)5° - 20°
  • Bakhalli (-)5° - 25°
  • Dýptar og breiddar stillanlegt sæti
  • Hæðar og halla stillanlegt bak
  • Hæðar, halla og breiddar stillanlegar armhvílur
  • Hæðar og halla stillanleg fótaplata
  • Ákveðnir áklæðis litir í boði án endurgjalds
  • Staðallitir: Ljósblár eða svartur

Eiginleikar:

  • Fjölhæfur og stillanlegur vinnustóll fyrir daglega notkun
  • Fyrir börn og ungmenni
  • Bætir setstöðu
  • Sérstyrktur rammi sem þolir mikið álag og rykkingar
  • Hægt að lækka alveg niður í gólf
  • Þýsk hönnun og framleiðsla
  • Hentugur stóll fyrir notendur með mikla hreyfiútrás
  • Mikið úrval sérlausna í boði
  • Auðvelt að aðlaga stólinn að þörfum barnsins.

Valmöguleikar:

  • Ýmsir höfuðpúðar í boði
  • Nafn útsaumað á bakpúða
  • 100mm færsluhjól
  • Mjaðmastuðningar
  • Hliðarpúðar
  • Bakframlenging
  • Dysplasia sæti
  • Borð af ýmsum gerðum
  • Hraðtengi á stillimöguleikum
  • Ýmis áklæði, setur, bök og klofkýll
  • Færsluhjól með bremsum
  • Ýmsar tegundir af beltum í boði
  • Bólstrun á fótaplötu og borð
  • Incontinence áklæði
  • Sérlitir á áklæði
  • Gott úrval aukahluta og sérlausna í boði

Sjá heimasíðu Schuchmann

Uppgefið verð er miðað við grunnútgáfu. Endanlegt verð ræðst af völdum aukahlutum og gengi við greiðslu.

Öll tækin frá Schuchmann eru sérsmíðuð fyrir notandann og er afgreiðslutími því í samræmi við það eða að jafnaði 8 til 10 vikur frá pöntun.

Fyrir frekari fyrirspurnir vinnsamlegast sendu póst á info@mobility.is

Ath! Auglýst verð vöru er byggt á gengi íslenskrar krónu gagnvart erlendum viðmiðunarmyntum. Réttur er áskilinn til verðbreytinga vegna gengisbreytinga.
Skoða allar upplýsingar