Patron TOM 5 Streeter kerra
Patron TOM 5 Streeter kerra
Couldn't load pickup availability
Grindin er samanbrjótanleg, öruggu hemlakerfi, fjöðrun með höggdeyfingu og hæðarstillanlegu handfangi.
Sætiseiningin er úr áli, hana má taka af grindinni, snúa í báðar áttir og stilla að fullu með tilliti til stærðar og stöðu. Sætið er búið nýstárlegri MONOSLIDE-hönnun, einföldu tilt-in-space og sveigjanlegu festikerfi fyrir stuðningsbúnað og staðsetningaraukahluti.
Sætið er klætt mjúku, bólstruðu textíláklæði. Auðvelt er að taka áklæðið af til að þrífa.
Kerran er hönnuð með áherslu á einfalda meðhöndlun og auðvelda notkun. Grindina má fella saman jafnvel þegar sætiseiningin er fest á hana. TOM 5 var hönnuð í samstarfi við sérfræðinga í setstöðu og sætislausnum. Hún sker sig úr bæði hvað varðar útlit og notagildi og er ein léttasta kerran í sínum flokki.
Heilu hjólin, 175 mm að framan og 265 mm að aftan, gera kerruna hentuga bæði til notkunar í þéttbýli og við léttari útivist.
Staðalbúnaður:
- Sæti sem hægt er að snúa í báðar áttir
- Hæðarstillanlegur bakstuðningur
- Sæti er breiddar- og dýptastillanlegt
- Bakstuðning er hægt að fella niður
- Mjaðmastuðningur
- Fótahvíla
- Öryggisslá með áklæði sem smá þvo
- Hæðarstillanlegt handfang
- Karfa og sætisáklæði með endurskinsmerkjum
- Úrval af litum á áklæði
Aukahlutir:
- Höfuðstuðningur (3 útgáfur)
- Hliðastuðningur
- Bolstuðningur
- Mjóbaksstuðningur
- 4 punkta belti
- 2gja punta belti
- H-belti
- Vesti
- Mjaðmafesting (pelivs fixation)
- Klofkíll (2 stærðir)
- Fótafestingar
- Bólstaður hliðarstuðningur á skerm
- Vinnuborð úr plexi (hægt að fá hallanstillanlegt)
- Skermur
- Regnplast
- Karfa (textíll, HD eða stál)
- Svunta (sumar eða vetur)
- Bremsur
|
Mál og eiginleikar |
MINI |
STD |
MAXI |
|---|---|---|---|
|
Hæð bakstuðnings (mm) |
440–570 |
510–680 |
550–700 |
|
Sætisdýpt (mm) |
185–240 |
230–330 |
290–400 |
|
Sætisbreidd (mm) |
190–290 |
250–350 |
290–390 |
|
Hæð frá sæti að fótaskemli (mm) |
90–260 |
120–360 |
120–390 |
|
Hallahorn bakstuðnings |
0°–170° |
0°–170° |
0°–170° |
|
Hallahorn sætis |
+38° / −28° |
+38° / −28° |
+38° / −28° |
|
Heildarlengd (mm) |
770 (870*) |
770 (880*) |
770 (880*) |
|
Heildarbreidd (mm) |
595 |
640 |
675 |
|
Heildarhæð / með handfangi (mm) |
950 / 1100 |
950 / 1110 |
970 / 1180 |
|
Hemlar |
— |
— |
— |
|
Heildarþyngd |
18,0 kg |
19,0 kg |
20,0 kg |
|
Hámarksburðargeta |
40,0 kg |
40,0 kg |
50,0 kg |
|
Lengd samanbrotin (mm) |
860 (870*) |
880 (890*) |
890 (900*) |
|
Breidd samanbrotin (mm) |
595 |
640 |
675 |
|
Hæð samanbrotin (mm) |
370 |
390 |
430 |

Uppgefið verð er miðað við grunnútgáfu. Endanlegt verð ræðst af völdum aukahlutum og gengi við greiðslu.
Allar kerrur eru sérpantaðar og er afgreiðslutími því í samræmi við það eða að jafnaði 6 til 10 vikur frá pöntun.
Ath! Auglýst verð vöru er byggt á gengi íslenskrar krónu gagnvart erlendum viðmiðunarmyntum. Réttur er áskilinn til verðbreytinga vegna gengisbreytinga.
