Skip to product information
1 of 11

Orbit 235 Snúningsrúm

Orbit 235 Snúningsrúm

Verð 2,490,000 kr
Verð 0 kr Útsöluverð 2,490,000 kr
Útsala Uppselt
Taxes included.
Magn

Orbit er ný kynslóð snúningsrúma sem er hannað til að auka sjálfstæði og öryggi fólks með skerta hreyfigetu. Rúmið hjálpar notandanum að fara mjúklega úr liggjandi stöðu í sitjandi stöðu og snýr honum að rúmbrúninni, sem gerir það mun auðveldara fyrir notanda að fara í og úr rúmi. 

Helstu kostir

  • 100% einstaklingsstillanlegt – hægt að laga að líkamsbyggingu, hæð og hreyfigetu hvers notanda.

  • Aukið sjálfstæði – Notandi getu farið sjálfur í og úr rúmi án aðstoðar. 

  • Örugg og mjúk hreyfing – samspil lyftingar og snúnings færir notanda í stöðuga sitjandi stöðu við rúmbrún.

  • Stillanlegar stillingar – hægt að breyta meðal annars:

    • lengd rúms

    • snúningshraða og snúningsstefnu

    • hæð fyrir inn- og útstíg

    • sætdýpt og bakhalla

    • fóthluta og stuðningi fyrir fætur

Hentar sérstaklega fyrir

Orbit er hannað fyrir fólk með skerta hreyfigetu, til dæmis vegna:

  • Parkinsons

  • MS eða taugasjúkdóma

  • afleiðinga heilablóðfalls

  • aldurstengdrar hreyfiskerðingar

Hannað fyrir marga notendur

Rúmið er margnota og hægt að endurstilla og aðlaga fyrir nýjan notanda. Það gerir lausnina bæði hagkvæma og sveigjanlega fyrir heimili, þjónustu og stofnanir.

Orbit snúningsrúmið sameinar þægindi, öryggi og tæknilega aðstoð til að styðja sjálfstæði fólks í daglegu lífi og gera fólki kleift að búa lengur heima við.

Aukahlutir:

  • Gripstöng
  • Grip haldföng
  • Handrið langt/stutt
  • Kaldsvampsdýna (Cold foam Mattress) 
  • þrýstingsléttandi dýnur (minnisfroða)
  • Lak fyrir dýnu og fótadýnu 

 

Þetta er sérpöntunarvara. Vinsamlegast hafið samband við info@mobility.is eða síma 5783600 fyrir frekari upplýsingar. 
Uppgefið verð er miðað við grunnútgáfu.
Endanlegt verð ræðst af völdum aukahlutum og gengi við greiðslu.

Ath! Auglýst verð vöru er byggt á gengi íslenskrar krónu gagnvart erlendum viðmiðunarmyntum. Réttur er áskilinn til verðbreytinga vegna gengisbreytinga.

Þetta er sérpöntunarvara.

Vinsamlegast hafið samband við info@mobility.is eða síma 5783600 fyrir frekari upplýsingar. 
Uppgefið verð er miðað við grunnútgáfu með dýnu og hliðarhandföngum
Endanlegt verð ræðst af völdum aukahlutum og gengi við greiðslu.

Ath! Auglýst verð vöru er byggt á gengi íslenskrar krónu gagnvart erlendum viðmiðunarmyntum. Réttur er áskilinn til verðbreytinga vegna gengisbreytinga.

 

 

Skoða allar upplýsingar