byACRE Dagpoki fyrir byACRE göngugrindur
byACRE Dagpoki fyrir byACRE göngugrindur
Couldn't load pickup availability
Dagpoki/daypack sem passar fyrir allar byACRE göngugrindur
Hvort sem þú ert að fara í ævintýraferð, kanna nýja staði eða skreppa í stuttan leiðangur er dagpoki tilvalinn til að geyma það sem þú þarft að hafa með þér.
Eiginleikar
- Rúmgóður poki fyrir ævintýri og nauðsynjar
- Létt og slitsterkt efni sem auðvelt er að þrífa
- Ytri vasi og festilykkjur á hliðum og að framan
- Slit- og veðurþolkið efni með vatnsfráhrindandi efni í botni og innan í poka
- Auðvelt að festa á og taka af
- Handföng til að halda á töskunni þegar hún er ekki á grindinni
Sportlegur dagpoki sem sameinar hagnýta hönnun og stílhreint útlit. Hann er hannaður til að rúma allt sem þú þarft í dagsferðir og smærri ævintýri. Rúmgott aðalhólf, ytri vasar, festilykkjur og festingarlistar utan á pokanum auðvelda þér að koma öllum nauðsynjum fyrir og festa viðbótarbúnað eftir þörfum.
Litlir, innfellanlegir festikrókar eru á báðum hliðum pokans, sem gerir auðvelt að festa hann á göngugrindina og taka hann af aftur. Teygjurnar aftan á pokanum festast við þverstöng göngugrindarinnar og halda honum tryggilega á sínum stað, jafnvel þegar farið er yfir ójöfnur. Mjúk burðarhandföng gera pokann einnig hentugan til daglegrar notkunar þegar hann er ekki festur á göngugrindina.
Á hliðum pokans eru vasar þar sem hægt er að geyma hluti sem gott er að hafa við höndina, auk festilykkja fyrir stærri eða fyrirferðarmeiri hluti, svo sem vatnsflöskur.
Pokinn er úr léttu, slit- og veðurþolnu efni. Vatnsfráhrindandi lag í botni og innan í pokanum veitir aukna vörn og hjálpar til við að halda innihaldinu þurru. Botninn er stífur þannig að pokinn stendur uppréttur sjálfur. Þrátt fyrir það er auðvelt að brjóta hann saman og geyma þegar hann er ekki í notkun. Þrif eru einföld – það eina sem þarf er rakur klútur.
