Access-Ability Stuðningsbelti í bíl
Access-Ability Stuðningsbelti í bíl
Couldn't load pickup availability
Stuðningsbelti fyrir börn á einhverfurófi. Það hentar einnig einstaklingum með vöðvaslappleika eða hreyfihömlun við ferðalög í bíl eða sérútbúnum ferðaþjónustubifreiðum. Beltið er lækningatæki í flokki 1 og er CE-vottað. Einnig þarf ávalt að nota belti bílsins á meðan hann er í akstri. Hentar fyrir einstaklinga frá 110cm-175cm á hæð. Í boði er að fá beltið með höfuðstuðning og stærri stærð sem hentar fyrir einstaklinga frá 175cm.
Beltið er hentug lausn fyrir einstaklinga sem eiga það til að losa sig úr beltum á meðan akstri stendur og skapa þannig hættu fyrir sjálfan sig og bílstjóra.
Beltið er úr neoprenefni og er búið sjö læsanlegum smellum, sem tryggja bæði þægindi og öryggi í bíl. Það samanstendur af stækkanlegum bakstuðning, bolbelti með sjö læsanlegum smellum, lyklakippu með lyklum, og öryggishníf til að skera öryggisbelti ef rýma þarf ökutækið í neyðartilvikum.
Eiginleikar:
- Ergónómísk hönnun með stækkanlegum bakstuðning
- 7 læsanlegar smellur
- 7 punkta stillanleg belti
- Frönsk hönnun og framleiðsla
- Uppfyllir alla öryggisstaðla EU
- Hentar fyrir einstaklinga frá 110cm-175cm á hæð
- Stærri stærð og höfuðstuðningur í boði
