Að sækja um hjálpartæki til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) getur verið flókið, sérstaklega þegar maður hefur ekki þurft á hjálpartækjum að halda.

Allar rafskutlur eru 100% niðurgreiddar af Sjúkratryggingum Íslands, hafir þú gilda ástæðu til.
“Sjúkratryggingar Íslands greiða fyrir þá [rafknúna hjólastóla með stýri, þ.e. rafskutlu] ef þeir leiða til aukinnar/bættrar færni. Rafknúinn hjólastóll er samþykktur vegna skaða, sjúkdóms og verulegrar minnkunar á almennri færni [....] 67 ára eða eldri sem er með skerta færni getur fengið úthlutað einfaldari rafknúnum hjólastól (svokallaðri rafskutlu) til að auðvelda sjálfstæða búsetu" (Reglugerð um styrki vegna hjálpartækja nr.760/2021).
Í stuttu máli þá getur einstaklingur með skerta færni, fötlun eða aldurstengd vandamál sótt um rafskutlu.
Til þess að sækja um rafskutlu þá eru leiðirnar helstar þessar:
-
Þú hefur þegar fengið samþykki frá SÍ
Nú hefur þú fengið samþykkta niðurgreiðslu hjá SÍ og verður að finna réttu skutluna. Þú heimsækir verslanir, velur skutlu og svo lætur þú SÍ vita. Því næst fær seljandinn meldingu að mega afhenda skutluna til þín.
-
Þú hefur EKKI fengið samþykki frá SÍ
Hægt er að skoða lista af rafskutlum í samning við SÍ hér, á bls.11.
Mobility er með tvær skutlur í samning:


Þegar þú hefur valið þá skutlu sem að hentar þér, getur heilbrigðisstarfsmaður s.s.heimilislæknir, sjúkraþjálfari eða iðjuþjálfi, sótt um skutluna á sínum innri samskiptavef til SÍ.
Hér er gátlisti fyrir heilbrigðisstarfsmenn.
Eftir að umsókn hefur verið lögð inn, fer nefnd SÍ yfir málið og er annaðhvort samþykkt eða hafnað. Sé umsókn samþykkt afhenda seljendur vörna.
Sé henni hafnað er hægt að sækja um aftur eða rökstyðja kaupin enn frekar.