Skip to product information
1 of 5

Tomcat Tamara

Tomcat Tamara

Verð kr740,000 ISK
Verð Útsöluverð kr740,000 ISK
Útsala Uppselt
m/vsk

Uppgefið verð er miðað við grunnútgáfu. Endanlegt verð ræðst af völdum aukahlutum og gengi við greiðslu.

Öll hjólin frá Tomcat SNI eru sérsmíðuð fyrir notandann og er afgreiðslutími því í samræmi við það eða að jafnaði 10 til 12 vikur frá pöntun.

Til að bóka prufu og mátun á hjóli vinnsamlegast sendu póst á info@mobility.is

Tomcat Tamara þríhjólið er sérstaklega hannað fyrir notendur sem notast við segllyftara eða auka aðstoð við að komast af og á hjólið. Bakstoðina er hægt að fella frá og hnakkurinn er snúanlegur. Hjólið er sterkbyggt og því einstaklega hentugt fyrir notendur sem eru í yfirþyngd. 

Tomcat þríhjólin eru framleidd í Bretlandi. Mikið af yfir 30 nýjungum sem Tomcat hefur kynnt á markað hafa orðið að framleiðslustöðlum á heimsvísu.

Hjólin frá Tomcat SNI eru einstök að því leitinu til að þau eru sérsmíðuð og aðlöguð sérstaklega með þarfir notandans í huga og eru því frábrugðin hefðbundnum þríhjólum þar sem notandinn þarf að aðlaga sig að hjólinu.

Tomcat Tamar þríhjólið er hannað til að henta einstaklingum með ýmsar fatlanir og færniskerðingar er öruggt til notkunar utandyra, við ýmsar fjölskyldu athafnir og auðvelt í flutning.

Tamara þríhjólið er fyrir notendur sem eru með takmarkaðar og allt að mikilla fatlana og/eða færniskerðinga og hentar notendum frá 4 ára allt uppí 16+ ára.

Heimasíða framleiðanda

Eiginleikar:

  • Eins gíra þríhjól með sérsniðið gírahlutfall eftir þörfum notanda
  • Ýmsar stærðir í boði Tamara hentar notendum frá 4 ára allt uppí 16+ ára.
  • Sérsmíðað fyrir notandann og aðlagað eftir þörfum hans
  • Létt aðeins 14kg að þyngd
  • Lítið sem ekkert viðhald
  • Stillanlegt stýri
  • Geometrísk hönnun hjólsins styður við rétta líkamsbeitingu
  • Val um handbremsu hægri eða vinstrimeginn á stýri

Valmöguleikar:

  • Aðstoðarmannastýri (Stýring, bremsa og hrað stjórnun aðstoðarmanns)
  • Handbremsa á aðstoðarmannarstýrinu (Neyðarbremsa fyrir aðstoðarmann þegar á þarf að halda)
  • Fríhjóla drif eða tvídrif "Dual Drive™"
  • Tvískiptur rammi sem hæg er að taka í sundur á örfáum sékundum
  • Snúningshnakkur "Swivel Saddle™" fyrir auðveldara aðgengi
  • Transfer step™ Þrep sem auðveldar notanda að komast af og á hjólið
  • Trailer Trike™ breytir hjólinu í hjólavagn með einu handtaki
  • Griphanskar fyrir aukið grip
  • Í boði eru hefðbundnir pedalar, pedalar með böndum, pedalaskór með eða án banda eða pedalaskór með spelkum.
  • Belti og/eða klofkýll fyrir mjaðmarstuðning
  • Öryggis bakstoð "Tee Bar", há bakstoð, belti og/eða hliðararmar/púðar fyrir búk og hrygg.
  • Mjaðma belti og/eða bolbelti eða mittis stuðningur
  • Höfuðpúði eða höfuðpúði með hliðarpúðum sem styður við höfuð og hnakka
  • Flöskuhaldari, karfa að aftan með festingum og aurhlífar
  • "Quick Release rear Wheels" hraðtengi á afturhjól svo hægt sé að taka þau af
  • "Bionic Buddy™" rafdrifkerfi stjórnað af notanda eða aðstoðarmanni (3km/klst)

Eina hjólið í heiminum sem er hannað fyrir segllyftara
Tamara hjólið býður uppá alla sömu aukahluti og nýjungar sem Fizz þríhjólið hefur að bjóða. Og þar að auki er Tamara með alveg einstakt kerfi "Tilt Away" til að fella bakstoðina frá hnakknum sem auðveldara aðstoðarmanni að nota segl til að koma viðkomandi af og á hjólið ef þörf er á því.

Hvernig virkar þetta
Snúningshnakkurinn býður uppá að setja notandan á hjólið frá báðum hliðum. Þegar notandinn er kominn á hnakkinn, snýst hnakkurinn fram og bakið fer aftur í upprétta stöðu og hjólið því tilbúið til notkunar. Þetta ferli tekur örfáar sekúndur, sem dregur verulega úr stressi og því álagi sem getur fylgt því að koma notandanum á hjólið.

Aðrir ávinningar
Tamara hjólið er létt en sterkbyggt og er því sérlega hentugt fyrir notendur í ofþyngd. Hægt að fjarlæga bakið með hraðtengi "quick-release" ramma tækninni sem einnig gerir Tamara þríhjólið eitt af þeim Tomcat hjólum sem eru auðveldust og þæginulegst í flutningi.

Sérsmíðað að þörfum notandans
Hvert Tamara þríhjól er hannað og sérsmíðað fyrir notandann því eru mælingar og færnismat ávalt upphaf pöntunarferilsins. Fyrst þegar málin ásamt færnismati og mati á þeim stuðningsbúnaði sem þörf er á liggur fyrir er hafist handa við að smíða hjólið.

Öryggi og stjórnun
Aðstoðarmannastýring og aðstoðarmannabremsa gerir foreldrum eða aðstoðarmanni kleift að bæði stýra og bremsa ef þess er þörf. Stýrishandfangið og aðstoðarmanna bremsubandið eru auðveldlega sett á og tekið af. Með þessari stýringu er auðvelt að hafa yfirumsjón með notandanum og á sama tíma veita frelsi til þess að hjóla sjálfstætt. 

Flutningur og geymsla
Tamara hjólið er létt og hægt að fá með tvískiptum ramma sem notast við "Two Piece Frame™" kerfið sem er einstakt kerfi frá Tomcat til að taka ramman í sundur og setja hjólið saman á ný. Hjólið er því frábrugðið öðrum yfirleitt þyngri og fyrirferðameiri sérhæfðum þríhjólum sem eru á markaði. Á auðveldan hátt er því hægt að taka hjólið í sundur til flutning eða til geymslu.

Bætt aðgengi
Snúnings hnakkurinn "Swivel Saddle™" auðveldar notandanum aðgengi að hjólinu. Hægt er að snúa sætinu til hliðar með einu handtaki. Í sameiningu með Transfer step™ Þrepinu er leikur einn fyrir notandann að komast af og á hjólið jafnvel án aðstoðar.

Ótal möguleikar
Hægt er að breyta hjólinu í hjólavagn með "Trailer-Trike™" togstönginni á örfáum sekúndum. Með Trailer-Trike™ getur notandinn notið þess að hjóla með og þar af auki hvílt sig á milli.

Ath! Auglýst verð vöru er byggt á gengi íslenskrar krónu gagnvart erlendum viðmiðunarmyntum. Réttur er áskilinn til verðbreytinga vegna gengisbreytinga.

Skoða allar upplýsingar