Þríhjólin frá Mobility sem opna nýja möguleika


Það er eitthvað frelsandi við að geta aftur farið að hjóla, sama á hvaða aldri eða í hvaða aðstæðum maður er.
Fyrir flesta snýst þetta ekki um hraða eða sportið, heldur um öryggi, jafnvægi, sjálfstæði og að njóta útiverunnar.

Þar koma þríhjólin sterk inn, sérhönnuð lausn fyrir þá sem vilja njóta hreyfingar án þess að fórna örygginu.

Meiri stöðugleiki – minna stress

Þrjú hjól þýða einfaldlega meiri jafnvægi. Þú þarft ekki að halda hjólinu uppi, hjólið sér um það sjálft og þú þarft aldrei að tylla niður fætinum til að halda jafnvægi.

Auðvelt að komast af og á

Lágt innstig og þægileg setstaða geta gert gæfumuninn, sérstaklega fyrir fólk með hreyfiskerðingu eða þá sem vilja einfaldlega meiri þægindi.

Þægindi sem gera hjólatúrinn betri

Sum þríhjól eru með baki, breiðara sæti og afslappaða setstöðu sem gerir lengri ferðir raunhæfari og sérstaklega þegar að þú bætir við rafmótor.

Rafmagns aðstoð sem opnar fleiri möguleika

Rafmagn hjálpar þegar þörf er á td. í brekkum og mótvindi eða þegar orkan er minni. Rafmagns aðstoðin gerir þér líka kleift að komast lengra og verður jafnvel til þess að þú ferð oftar út að hjóla. Þú getur hjólað langt án þess að svitna sem getur verið kostur ef þú ert td. Að hjóla til vinnu. 

 

Fyrir mismunandi þarfir

Úrvalið af þríhjólum er mjög fjölbreytt, allt frá sportlegum lausnum yfir í hefðbundnari hjól. Svo eru líka þríhjól fyrir þá sem þurfa meiri stuðning og þá er hægt að fara í hjólastólahjól, parahjól, hjól þar sem notandinn þarf spelkur, höfuðstuðning, gripaðstoð og fleira.

Það er óhætt að segja að allir gera hjólað með réttu lausnunum. 

Hentar daglegu lífi og endurhæfingu

Þríhjól eru bæði frábær til daglegra nota og sem hluti af endurhæfingu til þess að halda fólki í formi eða til þess að minnka einkenni sjúkdóma eins og Parkinsons.

Sjálfstæði sem skiptir máli

Fyrir marga er stærsti ávinningurinn að geta farið út sjálfur, þegar maður vill.

Einnig eru til hjól fyrir fjölskylduna þar sem börnin eru í körfu framan á hjólinu

Sérsniðnar lausnir

Hægt er að aðlaga hjólin og fá ráðgjöf eftir þínum þörfum og það eru nánast engar hömlur á aðlögun.

Handknúin hjól eru líka í boði fyrir þá sem hafa lítinn kraft í fótum og eru ótrúlega skemmtileg lausn

Fyrir alla aldurshópa

Þríhjól henta börnum frá tveggja ára aldri,  unglingum, fullorðnum og eldri einstaklingum.

Prófaðu og finndu muninn

Besti er að prófa sjálfur og finna hversu frelsandi það er að gera notið útiverunnar og nota þá frábæru hjólastíga sem borgin og sveitafélög hafa byggt upp síðustu ár.

Ef þú ert að velta fyrir þér hvort þríhjól gæti hentað þér þá er fyrsta skrefið að prófa og fá ráðgjöf.

info@mobility.is

Fara tilbaka