Meðganga og hjálpartæki
Meðganga er dásamlegur en krefjandi tími fyrir mæður. Mikið álag er lagt á líkamann og hann tekur því mivel. Sumir virðast "varla" taka eftir því en fyrir aðra er þetta mikið álag.
Ýmis hjálpartæki eru til fyrir óléttar konur til þess að létta meðgönguna og bæta lífsgæði.
Margar konur upplifa mikla ógleði fyrstu 12 vikurnar eða alla meðgönguna sína. Sea-band er ógleðisarmband sem sett er á báða úlnliði. Það veitir léttan en stöðugan þrýsting á nálastungupunkt sem dregur úr einkennum ógleði.

Er mikill bjúgur er til staðar þá er sniðugt að setja hátt undir fæturnar til þess að draga úr bjúgmyndun og létta álag á fótum. Einnig dregur það úr verkjum í baki og hnjám.
Skáhallandi púði getur veitt mismikinn halla undir fætur, en einnig hægt að setja við bak ef móðir er mikið rúmliggjandi.

Ílangur stuðningspúði sem hægt er að setja undir stækkandi bumbu eða milli hnjáa.

Sumar konur upplifa grindargliðnun eða verk í mjaðmagrind. Þá getur verið sársaukafullt að snúa sér í sæti t.d. þegar farið er í og út bíl.
Snúningsessan er tvöföld sessa sem auðveldar snúning. Hún er fyrirferðalítil og hægt að skella í hvaða stól sem er.

Ef kroppurinn er mjög slappur og móðir þarf að liggja mikið fyrir, er gagnlegt að hafa stuðningshandfang við rúm til þess að auðvelta það að standa upp og leggjast í rúm.
