Hvað skal gera þegar þröskuldar og stigar verða hindrun?

Rampar – auðveldari leið yfir þröskulda og tröppur

Þröskuldar, tröppur og hæðarmunur við innganga geta verið hindrun í daglegu lífi, sérstaklega fyrir fólk sem notar hjólastól, göngugrind eða á erfitt með gang. Með réttum rampi er hægt að gera aðgengi auðveldara, öruggara og auka sjálfstæði.

Það eru til margar mismunandi rampalausnir og mikilvægt er að velja ramp sem hentar aðstæðum hverju sinni.

Hvaða rampur hentar?

Þröskuldarampur: Hentar fyrir minni hæðarmun, til dæmis við hurðir og þröskulda

Rampakit: Hentar fyrir stærri hæðarmismun eða þegar hindrun hefur misfellur og brúnir. Við köllum þennan "Lego rampana" sem maður kubbar upp að hindruninni. 

Samanbrjótanlegir rampar: Hentugir þegar þörf er á færanlegri lausn, til dæmis til að komast inn og út úr byggingum eða yfir tröppur.

Upprúllanlegir rampar: Hægt er að aðlaga lengd þeirra að aðstæðum og þeir henta við ýmsar hindranir, svo sem þröskulda, tröppur og innganga.

Hvað þarf að hafa í huga við val á rampi?

Mikilvægt er að mæla hæð hindrunarinnar, skoða plássið sem er til staðar og taka mið af því hvort rampurinn sé notaður með hjólastól, rafskutlu eða öðru hjálpartæki. Halli rampsins, breidd, burðarþol og festing skipta einnig máli fyrir öryggi.

Hjá Mobility er hægt að fá fjölbreyttar rampalausnir fyrir heimili, stofnanir og ýmsar aðstæður. Við hjálpum þér að finna lausn sem hentar þínum þörfum.

Ertu með hindrun sem þú vilt komast yfir?
Sendu okkur mynd af aðstæðum og mælingu á hæðinni og við aðstoðum þig við að finna rétta lausn.


Fara tilbaka