Sjálfstæð færsla í og úr bíl
Fyrir marga getur verið krefjandi að standa upp úr bíl og komast inn.
Ýmsar ástæður geta verið fyrir því t.d.:
- verkir í fótum eða mjöðmum
- aðgerð
- meðganga og grindargliðnun

Sem betur fer eru til einfaldar lausnir sem geta gert þessa hreyfingu bæði auðveldari og öruggari.
Ein gagnleg lausn er Soft Turn snúningssessa. Hún er sett á bílsætið og gerir notandanum kleift að snúa sér mjúklega um 360° gráður án þess að þurfa að snúa líkamanum með álagi á hné eða mjóbak. Sessan er með stömu undirlagi svo hún helst á sínum stað og hjálpar til við að minnka álag við að setjast og standa upp.
Önnur lausn sem má nota með eða án sessunar er öryggishandfang fest við hurðaramma. Þetta er handfang sem krækt er í bílhurðalokarann, það eykur öryggi og dregur úr hættu að missa jafnvægi.

Með því að nýta sér slík hjálpartæki er hægt að viðhalda sjálfstæði lengur og gera daglegt líf þægilegra. Lítil breyting getur haft stór áhrif – sérstaklega þegar kemur að hreyfanleika og öryggi í hversdagslegum aðstæðum.
Stundum er jafnvægi og kraftur mjög skertur, þá er gagnlegt að grípa í flutningsbelti.
Þessu belti er smellt utan um mitti og er hannað til að vernda föt notanda, líkamsburði aðstoðarmanneskju með öryggi beggja í fyrirrúmi.