Skip to product information
1 of 4

Atlantis IV Snúningsbaðsæti frá Herdegen Paris

Atlantis IV Snúningsbaðsæti frá Herdegen Paris

Verð kr39,530 ISK
Verð Útsöluverð kr39,530 ISK
Útsala Uppselt
m/vsk
Snúningsbaðsætin Atlantis IV eru vönduð og stöðug sæti með 360° snúning á stýristöng, sætið læsist í 4 mismunandi stöðum á snúning sem bætir öryggi notandans. Sætin eru sterkbyggð og styðja allt að 130kg.
Rammi er úr epoxyhúðuðu stáli meðhöndlað með tæringarvörn. Armhvílur eru lyftanlegar sem auðvelda aðgengi í og úr sæti.
Auðvelt í uppsetningu, sætið festist með þrýstiboltum að innanverðu baðkari og fætur hvíla á baðkersbrún og tryggja þannig örugga stöðu.
Sætið er með drengötum sem hleypa frá vatni sem minnkar hættuna á því að renna til þegar staðið er upp úr sæti eftir böðun.
Sætin eru framleidd í Frakklandi við strangt gæðaeftirlit sem tryggja vandaða og endingargóða vöru.
ATH! Sætið er einnig fáanlegt með lengri fætur fyrir stærri baðkör.

Eiginleikar:

  • Sæti með drengötum sem hleypa vatni frá sem eykur öryggi við notkun
  • Passar á öll baðkör með ytri mál allt að 73cm
  • Festist með stillanlegum þrýstiboltum og fætur hvíla á baðkersbrún
  • CE merkt og stenst allar gæða og öryggiskröfur EU
  • Auðvelt í notkun með stýristöng á snúning
  • Snúanlegt í 360°, 4 læstar stöður
  • Framleidd í Frakklandi
  • Lyftanlegar armhvílur
  • Burðargeta: 130 kg

Tæknilegar upplýsingar:

  • Efni: Epoxyhúðað stál með ryðvörn og Pólýprópýlen plast
  • Mál; Rammi: 73x56cm; Sæti: 46x35cm; Bakhæð: 41cm; Breidd á milli arma: 48cm
  • Þyngd: 6.2 kg

Þessi vara er í samning við Sjúkratryggingar Íslands

Skoða allar upplýsingar